2010

er búið að vera frábært er búin að gera svo mikið sem að ég átti ekki von á árið 2009.


Í janúar byrjaði ég að vinna sem hársnyrtir í 100% starfi, tók síðan sveinsprófið með góðri hjálp frá vinum og ættingjum. Pabbi safnaði skeggi, amma fékk sér permó og Elna lét síðu lokkana fjúka. Mér til mikillar gleði náði ég öllum prófunum. 


Febrúar var bara rólegur, fór í helgarferð norður að heimsækja fjölskyldu númer 2.


Í mars útskrifaðist ég sem hársnyrtisveinn og var lítil athöfn sem mamma og pabbi fóru með mér í. Um kvöldið fórum við Hulda svo út að borða til að fagna því að ég var orðin sveinn.


Apríl byrjaði svo með ferð norður um páskana. Ég keyrði með ömmu og afa á skírdag norður. Sunneva keppti í módelfitness  og greiddi ég henni að sjálfsögðu fyrir keppnina. Hún stóð sig mjög vel og lenti í 2 sæti í sínum hæðarflokki. 

img_0108.jpg

 

img_0127.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á páskadag misstum við okkur svo í páskaeggjaráti. Ég keyrði svo aftur heim með ömmu og afa á annan í páskum.

Varð 22. ára 13. apríl, stækkaði þvi miður ekkert.

Í lok apríl fór Emil Gauti með foreldrum sínum til Florida í 6 vikur og mér fannst frekar erfitt að kveðja hann þá bara fyrir 6 vikur. 

Apríl endaði ég á sama hátt og ég byrjaði hann, með ferð norður á akureyri. Í þetta skipti var það til þess að fara á ungfrú norðurland, þar sem sunneva endaði kvöldið sem ungfrú norðurland. 

 

5. maí lögðum við Hulda í magnaða ferð, ferð sem við eigum aldrei eftir að gleyma.

Byrjuðum að fljúga til London og biðum í nokkra klukkutíma á Heathrow eftir flugi nr. 2 til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.  Erna og Gulli voru svo æðisleg að taka á móti okkur og gerðu þessa ferð ótrúlega góða og ógleymanlega. Við vorum í Dubai í 10 daga og gerðum svo marga skemmtilega hluti td. synda með höfrungum, fórum í desert safari og snjóbretti í eyðimörkinni. Fórum uppí hæstu byggingu í heimi og kíktum á skíðabrekku innandyra. Fyrir utan voru 44 gráður. Skoðuðum risa stóra mosku og fórum inní 7 stjörnu hótel og fengum okkur gullkökur og heitt kakó með þeim.  

img_0071.jpg

 

picture_111.jpg

 

 

 

 

picture_447.jpg

 

 

picture_368.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Á heimleiðinni stoppuðum við í London í 4 daga og fengum við að gista hjá frænda hennar  Huldu sem tók líka mjög vel á móti okkur. Þar kíktum við á höllina, London eye, Big Ben og að sjálfsögðu Oxford Street. Fórum líka að sjá Mama Mia sem var æði. Fórum líka á Abbey Road, bítlarnir tóku reyndar ekki á móti okkur en þar voru samt sem áður celeb þar.

picture_563.jpg

 

picture_642.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lok maí kom og veikindi með. Fékk einkyrningssótt og lá ég í rúminu í 2 vikur. Í lok maí missti ég líka vinnuna sem varð svo að því að ég tók eina stærstu ákvörðun lífs míns, sem ég sé alls ekki eftir.


Eftir veikindin í júní fór ég og skráði mig sem au pair í bandaríkjunum. Eftir það fór ég í að redda alls konar hlutum meðmælum, læknisvottorði og sakavottorði. Fór líka með mömmu og pabba norður, við gistum í sumarbústað rétt fyrir utan Akureyri og fórum svo í útskriftarveislu hjá Betty frænku. Hætti svo að vinna 30 júní.


Í júli hélt ég áfram í ferlinu að fara til Bandaríkjanna, þurfti að fara í enskupróf og viðtal hvort ég væri hæf til að fara. Ég nýtti líka júlí í að ferðast um Ísland, byrjaði uppí bústað hjá ömmu og afa í tilefni af afmæli afa. Keyrði svo í bæinn og og fór í útilegu með góðum vinum fyrstu helgina í júlí á snæfellsnesinu. Var svo heima í nokkra daga og klippti nokkra hausa og síðan fór ég með ömmu og afa uppí bústað í Skorradal. Gummi, Betty, Birta María, Kristján Óli, Knútur og Athena biðu eftir okkur þar. Þetta varð seinasta ferðin mín þangað af svo mörgum í gegnum tíðina en Amma og systkini hennar seldu svo Dýjabakka.  Við eyddum nokkrum dögum þar með ekkert rafmagn og ekkert heitt vatn, algjör afslöppun . Síðan keyrði ég norður með Akureyrarliðinu mínu, þar var ég í afslöppun í nokkra daga. Fór svo með Jóhönnu til Bakkafjarðar yfir helgi í tilefni af kátum dögum á Vopnarfirði, frekar fyndið að nokkrum mánuðum fyrr hafði ég ekki einu sinni hugmynd um hvar þessi staðir væru á landinu hehe. Eyddi svo nokkrum dögum til viðbótar á akureyri, og var að velta því fyrir mér að vera þar yfir verslunarmannahelgina. En viku fyrir hana ákvað ég að fara á Þjóðhátíð, þannig að ég pantaði flug frá Akureyri til Reykjavíkur til að undirbúa þjóðhátið.

20100715224749_12.jpg

 

img_0082.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ágúst byrjaði á frábærri þjóðhátíð, skemmti mér mjög vel. Ég fór með Herjólfi klukkan 12 á fimmtudagskvöldinu og við gistum í tjaldi í garði. Ég flaug svo til Reykjavíkur klukkan 8 á mánudagsmorgninum, algjör snilld að flýja úr rigningunni beint uppí rúm heima. Svo tóku við viðtöl við fjölskyldur í ameríku og talaði ég við 5 fjölskyldur. Um miðjan ágúst skellti ég mér svo enn eina ferðina norður og var þar í nokkra daga að hjálpa einstæðri móður með 3 börn og 2 hunda á meðan Gummi fór í veiði. Þar héldu viðtölin áfram en eftir að ég kom heim fann ég svo fjölskyldu sem mér leist mjög vel á og þeim leist vel á mig. 31. ágúst ákváðum við í sameiningu að ég myndi flytja til Glastonbury Connecticut.


September fór svo í undirbúning fyrir Ameríku og þurfti ég að sækja um visa hjá Bandaríska sendiráðinu, ég átti von á því að þetta yrði stórmál en eftir mikla undirbúningsvinnu var viðtalið þar ekkert mál og fékk ég visa. Í lok september þurfti ég að klippa alla áður en ég færi út og var frekar mikið af klippingum þá. 


Október: lokakvöldið var nautalund með fjölskyldunni heima og svo ísrúntur með Huldu og Jóhönnu í ísbúð vesturbæjar( þurfti að sjálfsögðu að kveðja hana líka). Erfiðast fannst mér að kveðja Emil Gauta sem var þá rúmlega eins árs nýbyrjaður að labba og komin með 3 tennur. Núna í lok árs hleypur hann og er komin með fullt af tönnum.

En við tók flug frá Keflavík til New York, JFK. Frekar skrítið að setjast uppí flugvél ein í fyrsta skipti á leið til útlanda, flugið var um 6 klukkutímar og ég var sótt af bílstjóra sem keyrði mig á hótel í New Jersey. Eyddi nokkrum dögum í New Jersey en svo var komið að því að hitta fjölskyldu mína í Ameríku næsta árið. Sem mér leist mjög vel á og allt gekk upp frábærlega að koma mér inní hlutina og inní heimilislífið. Ég keypti mér nýja tölvu og varð ástfangin af henni, ég keypti mér macbook og keypti mér svo bleikt hulstur utan um hana sem gerði hana ennþá fullkomnari.

Í lok október keyrðum við til Toronto sem var löng keyrsla en kom mér á óvart hvað hún var fljót að líða, ég náði að prjóna á leiðinni og bjó meðal annars til eyrnarband fyrir mig. Ég var svolítið að vinna í Toronto en náði samt að skoða mig aðeins um og leist mér bara ágætlega á borgina sem var frekar lík borg í USA nema að allt var á ensku og frönsku. Á leiðinni heim stoppuðum við og skoðuðum Niagara Falls og það var æði.

Hrekkjavaka kom og strákarnir voru riddari og lestarstjóri og ég fór út að sníkja nammi með þeim sem var frekar gaman.

img_0083_2.jpg

 

img_0009_2_1050951.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nóvember var frekar rólegur þangað til að kom að thanksgiving, þá kom fjölskylda Carolyn í heimsókn og vorum við 10 í húsinu( en húsið er nú samt 800 fermetrar þannig að það var  ekkert þröngt um okkur). Thanksgiving er spes hátíð, snerist bara um eina máltíð sem var ágæt svosem en perósnulega finnst mér mamma svo góður kokkur og ég er svo góðu vön að mér fannst hún hefði getað verið betri. Sérstaklega þar sem að það fóru 3 dagar í að undirbúa matinn. En dagurinn eftir thanksgiving fannst mér bestur Black Friday, þá opna búðirnar mjög snemma alveg frá 3-4 um nóttina. Ég var komin í mollið klukkan 5 um nóttina og ég gerði mjög góð kaup.


í byrjun desember kom Chanukah sem er hátíð sem gyðingar halda í 8 daga. Í tilefni af því fórum við í mat til pabba Adams og stjúpmömmu hans sem búa í New York City, ég var að fara inní borgina í 1 skipti eftir að ég fór til Connecticut. Pabbi hans býr á frábærum stað og eftir matinn fór ég aðeins á röltið í nýju úlpunni minni sem hélt mér vel heitri á röltinu um köldu New York.

Við fórum öll saman og völdum jólatré sem er ekkert smá stórt og fannst mér æði að finna grenilyktina í húsinu (mamma sorry en næstu jól gætiru þurft að taka frekar mikið af ofnæmislyfjum ). 

Viku fyrir jól fór ég á tónleika með Usher og ég skemmti mér þvílíkt vel enda ekkert smá flottir tónleikar. 

img_0060_1050956.jpg 

 

Á aðfangadag fórum við í mat til bróðir Adams sem býr í New York fylki, hálftíma norður af NYC. Ég klæddi mig upp eins og ég er vön að klæða mig fyrir aðfangadag en ég var best klædd í matarboðinu þar sem að flestir voru í gallabuxum. En mér var alveg sama þar sem að ég fór í 3 jólaboð í gegnum skype. Fyrsta jólaboðið var best en það var heima á Víðihvamminum og komu mamma og pabbi mér heldur betur á óvart með því að láta Adam afhenda mér jólagjöf frá þeim, ég átti von á að fá pening inná reikninginn minn. En ég fékk þessa líka frábæru bleiku myndavél frá mömmu og pabba í jólagjöf. Jólaboð númer 2 var á akureyri hjá fjölskyldu 2 og jólaboð númer 3 var heima hjá Hilmi bróðir mínum og Karen mágkonu, Emil Gauti mátti reyndar ekkert vera að því að tala við mig þar sem að hann var önnum kafin að elda í nýja eldhúsinu frá foreldrum sínum en hann var nú samt í inniskónum frá Ásrún frænku. Snemma á jóladagsmorgun skriðu 2 litlir drengir uppí rúm til mín og tilkynntu mér að jólasveinninn hefði komið um nóttina að sjálfsögðu fór ég með þeim upp og opnuðum við öll pakkana á náttfötunum klukkan 8 um morguninn.

Ég fékk fullt af pökkum og ég opnaði 1 pakka frá Íslandi og hann var frá Hilmi, Karen og Emil Gauti og ég er núna að lesa mér til um það hvernig ég á að vera dama.

Fjölskyldan hérna gaf mér líka fullt af gjöfum og ein af þeim var gjafarkort í eitt mollið og fór ég eftir jólin í apple og keypti mér bleikan Ipod fyrir gjafakortið og pening sem Akureyrarfjölskyldan mín gaf mér, takk æðislega hann er æði ;)

img_0002_1050952.jpg

 

img_0004_1050953.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

img_0005.jpg

 

 

img_0043_1050955.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Núna er 30. desember og ég er búin að pakka því að ég ætla að fara og kveðja þetta frábæra ár með stæl í New York City, Hulda ætlar að hitta mig og verð ég með henni og fleiri vinkonum á miðnætti í Central Park. Við ætlum að eyða allri helginni í borginni og ég kem heim aftur á sunnudagskvöldið.


Takk kærlega ef þú náðir að lesa þetta allt saman.

Fyrir þá sem komust ekki yfir það-


Nýjir staðir á árinu:

Dubai, Abu Dhabi, London, Bakkafjörður, New York, Connecticut og Toronto

Litur ársins: 

Bleikur

Árið:

Frábært

 

Ásrún 

img_0074.jpg 


Bloggfærslur 31. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband