Færsluflokkur: Bloggar
19.2.2011 | 03:38
18. febrúar
Váá er búin að vera þvílíkt löt og þar af leiðandi ekki mikið spennandi til að blogga um. Hef reyndar ekki bloggað um New York um gamlárs.
Ég fór um morguninn með rútu frá Hartford og var komin inná Manhattan um hádegið, fór þá og hitti Huldu og við löbbuðum þvílíkt mikið, frá downtown alla leið upp að Central Park og rúmlega það. Vorum svo í Central Park á miðnætti sem var mjög fínt sérstaklega þar sem að það voru flugeldar þar, held að áramótin hefðu verið ekki eins góð ef að það hefðu ekki verið neinir flugeldar Restin af helginni fór bara í að skoða borgina og ég held að ég hafi aldrei á ævi minni labbað svona mikið og var með beinhimnubólgu eftir allt labbið.
En í janúar og það sem liðið er af febrúar er ég ekki búin að gera neitt merkilegt það er búið að vera þvílíkt mikið af snow days, óþarfa snow days. En er að vona að öllum snow days sé lokið og snjórinn er sem betur fer farinn að bráðna mér finnst vera alveg komið nóg af honum.
En á morgun laugardag er ég að fara að sækja Birtu Maríu útá fluvöll, ótrúlegt hvað tíminn líður það er svo sutt síðan að það voru rúmlega 100 dagar í að hún kæmi og það er bara komið að viku fríinu mínu. Ég þarf að keyra í 2 tíma til Boston og hún lendir klukkan 6. Á sunnudaginn erum við að fara í snow tubing með au pair samtökunum, fimmtudaginn í næstu viku förum við svo til New York og verðum þar í 2 daga. Ætlum að gera margt á 2 dögum og skoða allt það helsta, fara í Gossip Girl tour og skauta í Central Park, við verðum á hóteli á 5th avenue 2 blocks frá Empire State.
Helgina eftir að Birta fer heim er ég að fara í skóla á Long Island og tek áfanga sem heitir History of American Music, vona að það verði skemmtilegt en er allavega sátt með hann enn sem komið er þar sem að vinkonur mínar sem eru að fara í 2 aðra áfanga fengu verkefni sem þær þurfa að gera áður en við förum en ég þarf bara að mæta með blað og penna.
En er orðin frekar þreytt eftir 10 tíma vinnudag þannig að ég er farin að sofa og lofa að blogga fljótlega eftir að Birta fer heim
Ásrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2010 | 06:29
2010
er búið að vera frábært er búin að gera svo mikið sem að ég átti ekki von á árið 2009.
Í janúar byrjaði ég að vinna sem hársnyrtir í 100% starfi, tók síðan sveinsprófið með góðri hjálp frá vinum og ættingjum. Pabbi safnaði skeggi, amma fékk sér permó og Elna lét síðu lokkana fjúka. Mér til mikillar gleði náði ég öllum prófunum.
Febrúar var bara rólegur, fór í helgarferð norður að heimsækja fjölskyldu númer 2.
Í mars útskrifaðist ég sem hársnyrtisveinn og var lítil athöfn sem mamma og pabbi fóru með mér í. Um kvöldið fórum við Hulda svo út að borða til að fagna því að ég var orðin sveinn.
Apríl byrjaði svo með ferð norður um páskana. Ég keyrði með ömmu og afa á skírdag norður. Sunneva keppti í módelfitness og greiddi ég henni að sjálfsögðu fyrir keppnina. Hún stóð sig mjög vel og lenti í 2 sæti í sínum hæðarflokki.

Á páskadag misstum við okkur svo í páskaeggjaráti. Ég keyrði svo aftur heim með ömmu og afa á annan í páskum.
Varð 22. ára 13. apríl, stækkaði þvi miður ekkert.
Í lok apríl fór Emil Gauti með foreldrum sínum til Florida í 6 vikur og mér fannst frekar erfitt að kveðja hann þá bara fyrir 6 vikur.
Apríl endaði ég á sama hátt og ég byrjaði hann, með ferð norður á akureyri. Í þetta skipti var það til þess að fara á ungfrú norðurland, þar sem sunneva endaði kvöldið sem ungfrú norðurland.
5. maí lögðum við Hulda í magnaða ferð, ferð sem við eigum aldrei eftir að gleyma.
Byrjuðum að fljúga til London og biðum í nokkra klukkutíma á Heathrow eftir flugi nr. 2 til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Erna og Gulli voru svo æðisleg að taka á móti okkur og gerðu þessa ferð ótrúlega góða og ógleymanlega. Við vorum í Dubai í 10 daga og gerðum svo marga skemmtilega hluti td. synda með höfrungum, fórum í desert safari og snjóbretti í eyðimörkinni. Fórum uppí hæstu byggingu í heimi og kíktum á skíðabrekku innandyra. Fyrir utan voru 44 gráður. Skoðuðum risa stóra mosku og fórum inní 7 stjörnu hótel og fengum okkur gullkökur og heitt kakó með þeim.



Á heimleiðinni stoppuðum við í London í 4 daga og fengum við að gista hjá frænda hennar Huldu sem tók líka mjög vel á móti okkur. Þar kíktum við á höllina, London eye, Big Ben og að sjálfsögðu Oxford Street. Fórum líka að sjá Mama Mia sem var æði. Fórum líka á Abbey Road, bítlarnir tóku reyndar ekki á móti okkur en þar voru samt sem áður celeb þar.

Lok maí kom og veikindi með. Fékk einkyrningssótt og lá ég í rúminu í 2 vikur. Í lok maí missti ég líka vinnuna sem varð svo að því að ég tók eina stærstu ákvörðun lífs míns, sem ég sé alls ekki eftir.
Eftir veikindin í júní fór ég og skráði mig sem au pair í bandaríkjunum. Eftir það fór ég í að redda alls konar hlutum meðmælum, læknisvottorði og sakavottorði. Fór líka með mömmu og pabba norður, við gistum í sumarbústað rétt fyrir utan Akureyri og fórum svo í útskriftarveislu hjá Betty frænku. Hætti svo að vinna 30 júní.
Í júli hélt ég áfram í ferlinu að fara til Bandaríkjanna, þurfti að fara í enskupróf og viðtal hvort ég væri hæf til að fara. Ég nýtti líka júlí í að ferðast um Ísland, byrjaði uppí bústað hjá ömmu og afa í tilefni af afmæli afa. Keyrði svo í bæinn og og fór í útilegu með góðum vinum fyrstu helgina í júlí á snæfellsnesinu. Var svo heima í nokkra daga og klippti nokkra hausa og síðan fór ég með ömmu og afa uppí bústað í Skorradal. Gummi, Betty, Birta María, Kristján Óli, Knútur og Athena biðu eftir okkur þar. Þetta varð seinasta ferðin mín þangað af svo mörgum í gegnum tíðina en Amma og systkini hennar seldu svo Dýjabakka. Við eyddum nokkrum dögum þar með ekkert rafmagn og ekkert heitt vatn, algjör afslöppun . Síðan keyrði ég norður með Akureyrarliðinu mínu, þar var ég í afslöppun í nokkra daga. Fór svo með Jóhönnu til Bakkafjarðar yfir helgi í tilefni af kátum dögum á Vopnarfirði, frekar fyndið að nokkrum mánuðum fyrr hafði ég ekki einu sinni hugmynd um hvar þessi staðir væru á landinu hehe. Eyddi svo nokkrum dögum til viðbótar á akureyri, og var að velta því fyrir mér að vera þar yfir verslunarmannahelgina. En viku fyrir hana ákvað ég að fara á Þjóðhátíð, þannig að ég pantaði flug frá Akureyri til Reykjavíkur til að undirbúa þjóðhátið.

Ágúst byrjaði á frábærri þjóðhátíð, skemmti mér mjög vel. Ég fór með Herjólfi klukkan 12 á fimmtudagskvöldinu og við gistum í tjaldi í garði. Ég flaug svo til Reykjavíkur klukkan 8 á mánudagsmorgninum, algjör snilld að flýja úr rigningunni beint uppí rúm heima. Svo tóku við viðtöl við fjölskyldur í ameríku og talaði ég við 5 fjölskyldur. Um miðjan ágúst skellti ég mér svo enn eina ferðina norður og var þar í nokkra daga að hjálpa einstæðri móður með 3 börn og 2 hunda á meðan Gummi fór í veiði. Þar héldu viðtölin áfram en eftir að ég kom heim fann ég svo fjölskyldu sem mér leist mjög vel á og þeim leist vel á mig. 31. ágúst ákváðum við í sameiningu að ég myndi flytja til Glastonbury Connecticut.
September fór svo í undirbúning fyrir Ameríku og þurfti ég að sækja um visa hjá Bandaríska sendiráðinu, ég átti von á því að þetta yrði stórmál en eftir mikla undirbúningsvinnu var viðtalið þar ekkert mál og fékk ég visa. Í lok september þurfti ég að klippa alla áður en ég færi út og var frekar mikið af klippingum þá.
Október: lokakvöldið var nautalund með fjölskyldunni heima og svo ísrúntur með Huldu og Jóhönnu í ísbúð vesturbæjar( þurfti að sjálfsögðu að kveðja hana líka). Erfiðast fannst mér að kveðja Emil Gauta sem var þá rúmlega eins árs nýbyrjaður að labba og komin með 3 tennur. Núna í lok árs hleypur hann og er komin með fullt af tönnum.
En við tók flug frá Keflavík til New York, JFK. Frekar skrítið að setjast uppí flugvél ein í fyrsta skipti á leið til útlanda, flugið var um 6 klukkutímar og ég var sótt af bílstjóra sem keyrði mig á hótel í New Jersey. Eyddi nokkrum dögum í New Jersey en svo var komið að því að hitta fjölskyldu mína í Ameríku næsta árið. Sem mér leist mjög vel á og allt gekk upp frábærlega að koma mér inní hlutina og inní heimilislífið. Ég keypti mér nýja tölvu og varð ástfangin af henni, ég keypti mér macbook og keypti mér svo bleikt hulstur utan um hana sem gerði hana ennþá fullkomnari.
Í lok október keyrðum við til Toronto sem var löng keyrsla en kom mér á óvart hvað hún var fljót að líða, ég náði að prjóna á leiðinni og bjó meðal annars til eyrnarband fyrir mig. Ég var svolítið að vinna í Toronto en náði samt að skoða mig aðeins um og leist mér bara ágætlega á borgina sem var frekar lík borg í USA nema að allt var á ensku og frönsku. Á leiðinni heim stoppuðum við og skoðuðum Niagara Falls og það var æði.
Hrekkjavaka kom og strákarnir voru riddari og lestarstjóri og ég fór út að sníkja nammi með þeim sem var frekar gaman.

Nóvember var frekar rólegur þangað til að kom að thanksgiving, þá kom fjölskylda Carolyn í heimsókn og vorum við 10 í húsinu( en húsið er nú samt 800 fermetrar þannig að það var ekkert þröngt um okkur). Thanksgiving er spes hátíð, snerist bara um eina máltíð sem var ágæt svosem en perósnulega finnst mér mamma svo góður kokkur og ég er svo góðu vön að mér fannst hún hefði getað verið betri. Sérstaklega þar sem að það fóru 3 dagar í að undirbúa matinn. En dagurinn eftir thanksgiving fannst mér bestur Black Friday, þá opna búðirnar mjög snemma alveg frá 3-4 um nóttina. Ég var komin í mollið klukkan 5 um nóttina og ég gerði mjög góð kaup.
í byrjun desember kom Chanukah sem er hátíð sem gyðingar halda í 8 daga. Í tilefni af því fórum við í mat til pabba Adams og stjúpmömmu hans sem búa í New York City, ég var að fara inní borgina í 1 skipti eftir að ég fór til Connecticut. Pabbi hans býr á frábærum stað og eftir matinn fór ég aðeins á röltið í nýju úlpunni minni sem hélt mér vel heitri á röltinu um köldu New York.
Við fórum öll saman og völdum jólatré sem er ekkert smá stórt og fannst mér æði að finna grenilyktina í húsinu (mamma sorry en næstu jól gætiru þurft að taka frekar mikið af ofnæmislyfjum ).
Viku fyrir jól fór ég á tónleika með Usher og ég skemmti mér þvílíkt vel enda ekkert smá flottir tónleikar.
Á aðfangadag fórum við í mat til bróðir Adams sem býr í New York fylki, hálftíma norður af NYC. Ég klæddi mig upp eins og ég er vön að klæða mig fyrir aðfangadag en ég var best klædd í matarboðinu þar sem að flestir voru í gallabuxum. En mér var alveg sama þar sem að ég fór í 3 jólaboð í gegnum skype. Fyrsta jólaboðið var best en það var heima á Víðihvamminum og komu mamma og pabbi mér heldur betur á óvart með því að láta Adam afhenda mér jólagjöf frá þeim, ég átti von á að fá pening inná reikninginn minn. En ég fékk þessa líka frábæru bleiku myndavél frá mömmu og pabba í jólagjöf. Jólaboð númer 2 var á akureyri hjá fjölskyldu 2 og jólaboð númer 3 var heima hjá Hilmi bróðir mínum og Karen mágkonu, Emil Gauti mátti reyndar ekkert vera að því að tala við mig þar sem að hann var önnum kafin að elda í nýja eldhúsinu frá foreldrum sínum en hann var nú samt í inniskónum frá Ásrún frænku. Snemma á jóladagsmorgun skriðu 2 litlir drengir uppí rúm til mín og tilkynntu mér að jólasveinninn hefði komið um nóttina að sjálfsögðu fór ég með þeim upp og opnuðum við öll pakkana á náttfötunum klukkan 8 um morguninn.
Ég fékk fullt af pökkum og ég opnaði 1 pakka frá Íslandi og hann var frá Hilmi, Karen og Emil Gauti og ég er núna að lesa mér til um það hvernig ég á að vera dama.
Fjölskyldan hérna gaf mér líka fullt af gjöfum og ein af þeim var gjafarkort í eitt mollið og fór ég eftir jólin í apple og keypti mér bleikan Ipod fyrir gjafakortið og pening sem Akureyrarfjölskyldan mín gaf mér, takk æðislega hann er æði ;)



Núna er 30. desember og ég er búin að pakka því að ég ætla að fara og kveðja þetta frábæra ár með stæl í New York City, Hulda ætlar að hitta mig og verð ég með henni og fleiri vinkonum á miðnætti í Central Park. Við ætlum að eyða allri helginni í borginni og ég kem heim aftur á sunnudagskvöldið.
Takk kærlega ef þú náðir að lesa þetta allt saman.
Fyrir þá sem komust ekki yfir það-
Nýjir staðir á árinu:
Dubai, Abu Dhabi, London, Bakkafjörður, New York, Connecticut og Toronto
Litur ársins:
Bleikur
Árið:
Frábært
Ásrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.12.2010 | 15:05
24. Desember
Gleðileg Jól og hafið það sem allra best um jólin.
Takk fyrir að fylgjast með mér ;)
Ásrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2010 | 03:54
22. desember
Letin hefur tekið völdin í að blogga, ætlaði að vera búin að blogga fyrir löngu en hugsa alltaf æi geri það á morgun hehe.
Fór á Usher á laugardaginn það var geðveikt!!!!

Var samt frekar þreytt sökum þess að ég svaf mjög lítið nóttina áður og var það útaf mús.
Sagan af músinni byrjaði á sunnudegi þegar ég, Adam og Carolyn heyrðum eitthvað skrítið hljóð en fundum ekki hvaðan það kom. Á föstudeginum eftir vorum við öll í eldhúsinu þegar við heyrðum hljóðin aftur, ég og Carolyn fórum inní stofuna og þá föttuðum við að hljóðið kæmi úr arninum (gas ) sem er í stofunni og hljóðin héldu áfram að koma. Ég og Benjamin náðum í vasaljós og fórum að lýsa inní arininn og í kringum hann. Þá sé ég þessa líka risastóru mús.

Um nóttina heyri ég svo í henni í loftinu hjá mér, þá var hún komin á milli gólfsins og loftsins. Ég panickaði og fór að ýminda mér ýmsa klikkaða hluti eins og hún myndi detta ofaná hausinn á mér. En ákvað svo að ef að ég myndi heyra í henni aftur þá myndi ég fara uppí gestaherbergi og sofa þar. Ég heyrði reyndar ekkert meir í henni þá nóttina en var andvaka til hálf 5.
Heyrði svo aftur í henni síðustu nótt, alltaf þegar hitinn kom á þannig að það er eins gott að hún drepist ekki því þá kemur vond lykt með hitanum og meindýraeyðirinn kemur ekki fyrr en á mánudaginn :S
En þessi dýr hérna í ameríkunni, sat í dag í stofunni og heyrði annað skrítið hljóð leit útum gluggann þá er bara íkorni að tjilla í gluggasillunni uppá 2 hæð.
Er samt pínu feginn að vera ekki þar sem mamma Carolyn býr. Hún á heima í Aspen og hún var að segja mér að þar eru skógarbirnir svakalegir. Þeir eru svo gáfaðir að þeir kunna að opna hurðir og fara inn ef það er ólæst, finna ískápinn og fá sér að borða. Kunna líka að opna bíla en þeir loka sig oft óvart inní bílum og þá rústa þeir bílnum.
Svo eru svaka framkvæmdir í gangi fyrir utan húsið einmitt útaf dýrum líka. Það voru risa steinar með ljósum á sitt hvorum megin við innkeyrsluna. En þar voru chipmunks búnir að búa til heimili og annar var að hrynja þannig að það er verið að búa til nýja og þeir ættu ekki að geta flutt þar inn.

Annars finnst mé frekar skrítið að Þorláksmessa sé á morgun. Bara venjulegur dagur hér, er að vinna frá 8:30-10 og svo aftur frá 15:23. Á föstudaginn er ég í fríi og förum við um hálf 1 til stjúpbróðir Adams hann býr í New York fylki rétt fyrir utan New York City. Konan hans er frá portúgal og er eina í fjölskyldunni sem heldur jól og fara þau alltaf í mat til hennar á aðfangadag. Var reyndar að fatta núna að ég á eftir að kaupa gjöf fyrir það, þau eru með einhvern leik fyrir fullorðna fólkið þar sem allir kaupa gjöf undir $20 og svo dregur maður pakka. En það er einhver hængur á að það er hægt að stela gjöfum af öðrum.

Annars er bara 1 pakki fyrir mig undir trénu :S Svolítið öðruvísi en ég er vön.
Pakkinn kom í síðustu viku frá Hilmi, Karen og Emma Gautanum mínum sem by the way sagði Ása í fyrsta skipti í síðustu viku.

Litli töffarinn minn sem er
orðin frekar stór og talar
svolítið mikið.
Er samt orðin frekar spennt fyrir gamlárs, er búin að kaupa rútumiða klukkan 10 frá Hartford og fer með Antiu(Spáni) og Lilju(Íslandi) og verðum við komnar til NYC um 12:30.
Restin af stelpunum kemur svo um kvöldið þar sem að 2 þurfa að vinna. Hulda ætlar að vera komin til borgarinnar aftur um sama leyti en hún verður í New Jersey áður.
Mig langar að fara og skoða jólatréð í Rockafeller Center og fara á skauta í Central Park á föstudeginum. Á laugardeginum ætla stelpurnar héðan út að frelsisstyttunni en það er uppselt uppá topp þannig að ég ætla ekki að eyða tíma í skítakulda í ferjunni og komast ekki uppá topp. Ætla frekar að skoða Manhattan með Huldu, fer svo sennilega með stelpunum í Rockfeller Center uppá topp um 4 leitið á laugardeginum sem er flottur tími akkúrat þegar sólin er að setjast.
Á svo rútumiða aftur heim á sunnudeginum klukkan 19:40 og þá þarf ég að kveðja Huldu :(
En annars á Birta María flugmiða til Boston 19. febrúar, hann var keyptur í dag :D
8 dagar í Huldu
58 dagar í BIrtu
117 dagar í mömmu og pabba
Ásrún
ps. Adam fékk jólakort og ég tók myndir af því


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2010 | 05:31
9. desember
Búið að vera frekar mikið að gera hérna í Ameríkunni, fór með fjölskyldunni í matarboð í NYC í síðustu viku. Matarboðið var heima hjá pabba Adams og stjúpmömmu hans, þau búa á þvílíkt flottum stað á Manhattan rétt hjá Central Park og uppá 21 hæð. Ég fór aðeins í göngutúr, tók nokkrar myndir og mér var sko ekki kalt þar sem að ég var að nota nýju úlpuna mína í fyrsta skipti.






Á laugardaginn fórum við svo og keyptum jólatré, ég og strákarnir skreyttum það saman og það er risa stórt.
Á sunnudaginn komu, Spánn, Þýskaland og Svíþjóð í klippingar og litanir. Það gekk mjög vel og ég græddi smá auka pening :D
Fór og verslaði aðeins í gær, fann kjól fyrir gamlárskvöld í New York City. Er orðin mjög spennt fyrir því, 22 dagar í að ég verði með Huldu og stelpunum í Central Park.
Annars eru strákarnir báðir búnir að fá ælupest síðustu 2 daga, vona að ég hafi sloppið. Nenni alls ekki að verða veik.
Fékk fréttir frá mömmu í dag að þau eru búin að kaupa flugmiða til Boston 19 apríl og frá New York 28. apríl. Þau ætla að vera aðeins í Boston, aðeins í Glastonbury og aðeins í NYC.
Ásrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.11.2010 | 05:09
28. nóvember
Fór í Ikea í dag, og keypti í aðventukrans sem ég bjó til.
Ameríka er að detta í jólagírinn þar sem að Thanksgiving er búið, fólk er farið að skreyta húsin sín og ég er farin að heyra jólalög. Ég er að fara með fjölskyldunni næsta laugardag að kaupa jólatré, frekar fyndið að fá fyrsta alvöru jólatréð hjá fólki sem eru gyðingar og halda ekki jól hehe.
En þar sem að ég kveikti ekki á aðventukransinum mínum fyrr en eftir að strákarnir voru farnir að sofa þá náði ég ekki að segja þeim frá því. En næsta sunnudag ætla ég að taka hann upp og segja þeim frá þessari íslensku hefð og kveikja á kerti nr. 2 með þeim.
Í næstu viku byrjar Hanukkah, jólahátið gyðinga. Hún er í 8 daga og það er mismunandi hvenær hún er frá ári til árs. Núna byrjar hún á miðvikudaginn og á fimmtudaginn ætlar fjölskyldan til NYC í matarboð hjá pabba Adams, ég má fara með í matinn eða fara með þeim og nýta tímann í að skoða borgina eða bara vera heima.Er ekki ennþá búin að ákveða hvað ég geri en tel ólíklegt að ég verði heima.
Strákarnir fá gjafir á hverjum degi í 8 daga frá foreldrum sínum, en ég ákvað að kaupa jólagjafir fyrir þá til að sýna þeim hvernig jólin eru hjá mér.
Annars var Thanksgiving vikunni að ljúka, frekar skrítin vika vinnulega séð. Fjölskylda Carolyn var í heimsókn og vorum við 10 í húsinu og mér fannst frekar gott þegar það fækkaði aftur og fá ró aftur í húsið.
Ég fór með öllum út að borða á japanskan stað hér í Glastonbury á miðvikudaginn, maturinn var mjög góður. Ég fékk steik og kjúkling og kokkurinn eldaði þetta beint fyrir framan okkur. Sama dag var skrifað undir einhvern svaka samning í vinnunni hjá Adam þannig að við skáluðum í kampavíni á veitingastaðnum.


Á fimmtudaginn, Thanksgiving daginn var ég að vinna um morguninn. Við horfðum á Macys Thanksgiving Parade sem var í 3 tíma en við horfðum bara á helminginn og fórum svo út að leika. Eftir hádegi ákvað ég að leggja mig aðeins þar sem að ég vissi að ég myndi ekki sofa lengi um nóttina. Klukkan 6 byrjuðum við að borða kalkún, sætar kartöflur, fyllingu, sósu og skrítið grænmeti. Við fullorðna fólkið borðuðum svo eplaköku, graskersköku og ís við arininn þegar krakkarnir vorum sofnaðir.
Nokkrum klukktímum seinna eða klukkan rúmlega 4 vaknaði ég og klæddi mig og var kominn í mollið klukkan 5 :D Eyddi 350-400 dollurum (tæplega 40.000) en tæpir 200 dollarar fóru í nýju North Face úlpuna mína Grænland sem ég fæ reyndar ekki fyrr en á miðvikudaginn því þá byrjar útsalan sem ég keypti úlpuna á. Það var hægt að gera mjög góð kaup, flestar búðirnar voru með góða afslætti aðrar sem fólk verslar hvort eð er við eins og Abercrombie and Fitch, Victorias Secret og Apple voru ekki með afslætti eða mjög lélega afslætti. En td. fór ég í Disney búðina og þar var búið að lækka verðið á fullt af vörum og til 10 var hægt að fá 20% afslátt af lækkaða verðinu, ég keypti náttföt sem vanalega kosta 16.50 en voru lækkaðir niður í 10 dollara og ég fékk 20% afslátt og borgaði 8 dollara. Algjör snilld, náði að kaupa nokkrar jólagjafir til að senda til Íslands og að sjálfsögðu nokkra hluti fyrir mig haha.
Í gær laugardag var ég að vinna í 8 tíma og mér leið í allan gærdag eins og það væri mánudagur, eftir að ég var búin að vinna skreið ég uppí rúm með ís og stytti buxurnar sem ég keypti mér á föstudaginn yfir Home Alone 2. Mjög fjörugt laugardagskvöld hjá mér. Ég ákvað að taka tímann á meðan ég var að horfa á Home Alone, myndin var sýnd í 9 mínútur og svo komu auglýsingar í 5 mínútur myndin í 9 mínútur og auglýsingar í 5 mínútur, svona var þetta alla myndina ég veit ekki einu sinni hvernig ég hafði þolinmæði í að klára myndina.
Í dag fórum við stelpurnar til New Haven(borgin sem Yale er í ) ca. 45 mínútur frá Glastonbury og við skelltum okkur í Ikea. Skemmtum okkur frekar vel og eyddum nokkrum dollurum líka og fengum okkur svo hádegismat þar. Eftir Ikea nenntum við ekki heim strax en vissum ekki hvað við vildum gera, stelpurnar voru að tala um að fara í moll í New Haven en enginn ætlaði að kaupa neitt þannig að ég stakk uppá að við færum á ströndina. Sem við gerðum og eftir dágóðan tíma í að finna strönd sem var ekki bakgarðurinn hjá fólki fundum við flotta strönd og náðum að vera þar aðeins áður en sólin settist. Því að hún sest frekar snemma, það er komið myrkur klukkan 5.
Annars er það komið á hreint að ég er að fara á Usher tónleikana sem ég keypti miða á :D Tónleikarnir eru eftir 20 daga og svo er það New York City 31. des eftir 33 daga og hitti Huldu þá :D Get ekki beðið eftir hvoru tveggja. Við ætlum að vera í Central Park á miðnætti og fara svo á skemmtistað eftir það, er búin að kaupa miða á skemmtistað sem að ég held að sé á Times Square. Borgaði 40 dollara fyrir miðan og það eru fríir drykkir til 4.
Hvíta edikið virkaði ekki svo vel, held að lærin á mér hafi verið aðeins minna blá en þau voru samt blá. Ef þú ert með einhverja lausn endilega láttu mig vita!!!!
Ásrún
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.11.2010 | 03:10
23. nóvember
Það er ekkert sem fær mig til að stoppa í búðunum og spara pening.
Fór í Westfarms á sunnudaginn og keypti flottustu skó sem ég hef nokkurn tímann keypt mér og mér er alveg sama þó að ég noti þá aldrei þá verða þeir bara punt uppá hillu.
Borgaði 2.500 kr fyrir þá í Forever 21
Keypti mér úr sem var á 80% afslætti í JC Penny borgaði 900 kr. fyrir það
Pantaði þessa úlpu í Macys og er að bíða eftir símtali um að hún sé komin, fæ hana á 25% afslætti en er að vona að hún komi fyrir föstudag og að ég geti fengið meiri afslátt þá. Með 25% afslætti og skattinum (helvítis skatturinn sem reiknast alltaf eftirá) kostar hún 200 dollara tæplega 23.000 kr.
Fór í Buckland hills mollið á fimmtudaginn og keypti mér hettupeysu og 2 boli í Hollister. Villtist svo á leiðinni heim, tók vitlausa beygju á highwayinum og fór yfir á annan highway þannig að ég fór strax útaf honum og var ekki með gps tækið því að Adam var með það í Californiu. Endaði á rúntinum í East Hartford sem er bærinn við hliðiná Glastonbury en ég hef aldrei farið þangað endaði á að ég dró upp kortabók og fann útúr því hvar ég væri og hvert ég gæti farið til að komast heim. Komst heim að lokum reyndar 5 mínútum seint fyrir vinnuna en það var allt í lagi.
Á föstudaginn fékk ég sms frá stelpunum að þær ætluðu á Harry Potter klukkan 9:45 og ég sagði að ég myndi koma, en svo fattaði ég þyrfti að skila bílnum fyrir 12 :S En Stephanie (þýsk stelpa) sem býr langt frá mér kom og sótti mig. Þegar við vorum í bílnum á leiðinni hringdi Antia(spænsk stelpa) og sagði okkur að það væri uppselt klukkan 9:45 en laust klukkan 10:30 en svo þegar við komum þá var uppselt á 10:30. Enduðum á að sjá myndina klukkan 11:30 og ég var komin heim klukkan hálf 3. Ég var sem betur fer í fríi á laugardaginn en Stephanie þurfti að vakna klukkan 6 til að fara til NYC og Antia klukkan 7 til að vinna en ég svaf til 11 :D
Myndin var góð, held samt að mesta spennan komi í seinni partinum sem kemur í bíó í júlí.
Annars er búið að vera frekar mikið um að vera hér, við erum 10 í húsinu núna. Er búin að ákveða eftir kvöldið í kvöld að eignast ekki fleiri en 2 börn. Þurfti að gefa 4 krökkum kvöldmat og koma þeim í rúmið. Hefði sennilega verið minna mál ef frænka þeirra og frændi væru jafnvel uppalin og Benjamin og Joshua en þau eru eldri og erfiðari.
Er að fara út að borða á japanskan stað með allri fjölskyldunni á morgun eftir vinnu, stuttur vinnudagur á morgun 2- 5 og við förum út að borða klukkan hálf 6.
Er komin með lausn við gallabuxna vandamálinu en á eftir að sjá hvort að það virki, þvo þær með hvítu ediki. Ætla að prófa það á morgun :D
Læt ykkur vita fljótlega hvernig Thanksgiving var og Black Friday :D
Ásrún
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2010 | 04:02
16. Nóvember
Til hamingju með afmælið elsku Betty!!!
Er þvílíkt spennt, Hulda er að koma til New York yfir áramótin :D Ég verð í New York frá 31 des - 2 janúar, hef 3 daga með Huldu og eftir það fer hún til North Carolina og verður þar í til 6 janúar.
Ég fékk 100% svar áðan frá Carolyn um að Birta megi koma frá 19- 27 febrúar. Þá viku verða þau á Aruba þannig að ég verð í fríi þá og Birta með mér. Planið núna er 2 dagar í NYC og 1 dagur í Boston og restina finnum við út seinna.
Er samt ennþá að bíða eftir svari með 18 des, á miða á Usher tónleikana þá. Vona að ég fái svar fjótlega, er samt nýbúin að spurja þau útí það og þau sögðust ætla að athuga það held að það hafi gleymst útaf því að það er svo mikið að gera núna.
Mamma Carolyn kemur á fimmtudaginn frá Colorado, mágur hennar kemur á föstudagskvöld frá San Francisco. Adam kemur heim á laugardagsmorguninn úr vinnuferð sem hann fór í á sunnudaginn til San Diego og San Francisco. Á laugardagskvöldið kemur systir Carolyn með börnin sín 2 og þá eru allir komnir sem verða hér yfir Thanksgiving sem er eftir rúma viku.
Tíminn líður svo hratt, vika í Thanksgiving og þá er mánuður í jólin. Í byrjun desember er Hanukkha þá fara þau á fimmudagskvöldi til NYC, veit ekki hvort að ég fari í mat hjá pabba Adams eða fái kannski að taka vinkonu með mér til að eyða nokkrum klukkutímum í NYC með mér.
Fór til Yale aftur síðasta laugardag með nokkrum stelpum á mánaðarlega hittining hjá öðrum samtökum, við fórum í guided tour um Yale. Stelpa sem er í Yale var að segja okkur frá skólanum og útskýra hvernig hann virkar. Eftir tourinn gátum við farið á fótboltaleik en við ákváðum að endurtaka það ekki. Mjög skemmtilegt að fara í þennan tour og fá að vita hvernig skólinn er.
Er í fríi næstu helgi og planið er Harry Potter á laugardaginn með stelpunum, afmæli hjá þýskri stelpu sem býr í bænum mínum og heitir Madeleine á laugardagskvöldið. Á sunnudaginn er mánaðarlegi hittingurinn hjá samtökunum mínum, ætlum á kaffihús og svo Harry Potter en við ætlum á laugardaginn þannig að það er bara kaffihúsið fyrir okkur.
Fór í dag og tékkaði á Victorias Secret í Glastonbury. Fyrsta skiptið sem ég fer í VS síðan ég kom og að sjálfsögðu þó ég sé að spara varð ég að kaupa eitthvað. Keypti 2 glossa fyrir 12 dollara.

Fór síðan á bókasafnið og fékk bókasafnskort og leigði fyrstu bókina og það er bara sett pressa á mann 3 vikur sem ég hef til að lesa Gossip Girl bók nr. 3.


Annars bara allt gott að frétta af mér, er orðin manneskja sem að ég hélt að ég gæti aldrei orðið. Bý um rúmið mitt á hverjum morgni og brýt saman fötin mín og geng frá þeim á hverju kvöldi. Fer í ræktina næstum því á hverjum degi, stundum annan hvern dag. Hlaupabrettið og kickbox er vinsælast.
9 dagar í Black Friday, SPARA SPARA. Er búin að gera lista yfir það sem mig langar að kaupa. Ætla að fara í einhverjar búðir á fimmtudaginn og forskoða og máta. Ætla að fara og tékka á úlpu og snjóbuxum sem ég fann á netinu.
Öll ráð varðandi gallabuxur sem lita eru mjög vel þegin. Er orðin frekar þreytt á bláum lærum, bláum höndum og blárri klósettsetu. Er búin að þvo þær 3 eða 4 sinnum og á köldu og heitu, réttunni og röngunni og þvo þær sér. Ekkert virkar.
Ásrún
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2010 | 01:49
4 vikur :D
Það er búið að vera frekar rólegt hjá mér uppá síðkastið, er aðallega bara búin að vera að vinna, versla og hlaupa.
Talandi um að hlaupa þá fannst mér vera komið gott af því að hlaupa í Ecco sandölunum mínum. Þannig að ég fór í dag í Design Shoe Warehouse og keypti mér hlaupaskó. Hlakka til að prófa þá á morgun.
Ég keypti Adidas skó og borgaði 4.600 kr fyrir þá.
Fór líka í Target og keypti mér hárlit :S Komnar 5 vikur síðan að Jóhanna litaði mig en hárið á mér er búið að vaxa mjög hægt þannig að ég er ekki alveg að deyja útaf rótinni en það fer að koma að því.
Hélt að ég myndi aldrei setja pakkalit í hárið mitt, en ég vil frekar gera það heldur en að fara í litun hér og verða gjaldþrota við að fara til gellu sem er varla lærð.Lilja fór í klippingu hér og borgaði 140 dollara (tæpan 16000 kall) fyrir lit í rót og lét særa hárið og hún fékk afslátt. Svo er fólk á Íslandi að kvarta yfir verðinu.
Síðustu helgi var Halloween og það er ekki auðvelt að reyna að minnka nammiát þessa vikuna, það komu ekki svo margir að sníkja nammi þannig að það er frekar mikill afgangur :S En ég er að standa mig í ræktinni í kjallaranum :D
Ég var að passa á laugardagskvöldinu þegar allir fóru á Halloween djammið, ég var frekar fúl þegar þau komu heim eftir 2 tíma og sögðu að partýið hefði verið leiðinlegt. Stelpurnar skelltu sér í búninga og fóru á djammið í New Haven sem er bærinn sem Yale er í. Á sunnudeginum fór ég með strákunum að sníkja nammi, trick or treat. Benjamin var riddari (knight) og Joshua var lestarstjóri og hann sagði að hann væri train conductor og pilot (flugmaður) en hann var í lestarstjóra búning.


Fór í bíó í síðustu viku á myndina Life as we know it. Fannst hún rosa góð og ég held að hún komi í bíó á Íslandi í febrúar þannig að þið þurfið að bíða frekar lengi. Er að fara í bíó aftur á morgun með öllum stelpunum en við fórum bara 2 í síðustu viku. Við ætlum að fara á Due date á morgu .
Ég ætla ekki að gera sömu mistök á morgun og ég gerði í síðustu viku, lét gelluna í sjoppunni í bíóinu plata mig í að kaupa tilboð með stóru gosi og poppi. Ég drakk gosið og pældi ekkert í því að það er ekkert hlé þannig að ég átti erfitt með að standa upp ég þurfti svo mikið að pissa þegar myndin var búin. Ég ætla ekki að kaupa neitt að drekka á morgun.
Ég var hrikalega ánægð með mig í dag því að ég komst í mollið án þess að nota gps tækið, þurfti samt aðeins að nota það á leiðinni heim útaf því að ég hef aldrei keyrt þessa leið áður heim og ég þurfti að vita hvaða exit ég átti að taka af einum highway yfir á annan.
Er að passa núna á fimmtudagskvöldi, var að klára pizzu og var að naglalakka mig yfir Greys Anatomy þetta er ekkert sérstakur þáttur en eftir honum er Private practice og auglýsingin leit vel út. Annars er ég hrikalega ánægð með að kosningarnar séu búnar hér án djóks er komin með nóg af kosninga auglýsingum og lyfja auglýsingum og því miður eru þær ekki að fara að hætta. Önnur hver auglýsing er fyrir eitthvað lyf og þeir lesa upp allt sem lyfið gerir og allar aukaverkanir svo kemur í endann spurðu lækninn þinn um þetta lyf.
3 vikur í Thanksgiving og þá er ég lítið að vinna útaf því að fjölskylda Carolyn er að koma. Systir hennar með manninn sinn og börn og mamma hennar. Ég verð í fríi daginn eftir Thanksgiving sem er Black Friday þá byrja útsölurnar og fólk stendur í röðum hálfa nóttina fyrir utan búðirnar. Þannig að ég ætla að byrja að spara til að kaupa mér eitthvað þá, er ekki búin að ákveða að ég ætla að kaupa en er með margt í huganum, mig langar í úlpu, snjóbuxur, gönguskó, skó, ipod og myndavél.
Ásrún
ps. var að fatta að ég er búin að vera hér akkúrat í 4 vikur í dag, ekkert smá sem tíminn er búin að líða hratt
28.10.2010 | 01:17
Komin aftur "heim"
Ótrúlega gott að vera komin aftur heim til Glastonbury eftir góða ferð til Toronto frá fimmtudegi til mánudags. Við lögðum af stað hálf 3 á fimmtudaginn og vorum komin til Toronto eitthvað um 1 um nóttina (sofnaði síðasta spottan og er ekki alveg með það á hreinu klukkan hvað ég staulaðist úr bílnum og á vinsængina). Á föstudeginum fóru þau út um 9 leitið og þá var ég með hausverk þannig að ég kaus að sofa aðeins lengur. Ég fór svo og hitti þau í The CN Tower (Canadas National Tower) í hádegismat, þá voru þau búin að fara uppá topp þannig að eftir hádegismat skellti ég mér bara ein upp.
Ég vissi að Toronto væri stór borg en svona stór átti ég ekki von á. Það var frekar magnað að sjá hana úr turninum og horfa niður á hana í gegnum glergólf, frekar erfitt að taka skrefið útá glergólfið en að standa á því var ekkert mál en skrítið samt.
Síðan rölti ég tilbaka í íbúðina, þar sem þau voru öll að leggja sig en þar sem að ég svaf lengur lagðist ég bara í sófann með tölvuna og horfði á bíómynd. Á föstudagskvöldið var ég að passa frá 7. Á laugardeginum fór ég með þeim í vísindasafn sem var ágætt, skoðuðum aðallega spennandi hluti fyrir aldurinn 3-5 ára. En fórum líka og sáum bíómynd um flugvélar í imax bíói sem var mjög flott. Salurinn er risa kúla og skjárinn er allt loftið þannig að við þurftum eiginlega að liggja. Myndin var aðallega um Boing dreamliner, sem var bara ágæt.
Eftir hádegi rölti ég með tölvuna á næsta Starbucks og þar var frítt internet og ég sat þar í 2 tíma held ég. Þau fóru öll í matarboð á laugardagskvöldið þannig að ég keypti mér pizzu og og ís og hafði það bara kósý. Á sunnudeginum beilaði ég á öðru safni og fór bara aftur á Starbucks, var svo að passa frá 3 - 12. Ég krullaði hárið á Carolyn og ég held að hún sé nokkuð sátt með að hafa au pair sem er hárgreiðslukona. Síðan fór ég með strákana á veitingastað og guð hvað ég vona að ég verði aldrei einstæð móðir með litla krakka. Við sátum þarna og vorum að borða þá þurfti annar strákurinn að pissa þannig að ég þurfti að taka veskið mitt og báða strákana á hinn endann á veitingastaðinn ( gleymdi símanum mínum á borðinu en hann var sem betur fer ennþá þar þegar ég kom til baka). Síðan þegar við vorum alveg að verða búin að borða þurfti hinn strákurinn að pissa. Eftir á hugsaði ég afhverju pantaði ég ekki bara mat í íbúðina.
Á mánudaginn vaknaði ég klukkan 7 og við lögðum af stað klukkan hálf 9. Ég sofnaði strax í bílnum og var vakin klukkan 10 þegar við vorum komin að Niagara Falls. Stoppuðum þar í 2 tíma. Skoðuðum fossana og fengum okkur að borða. Fossarnir voru ótrúlega flottir, misstum af Maid of the mist sem er ferja sem tekur fólk í útsýnistúra um Niagara Falls og fólk verður víst rennandi blautt. En síðasti dagurinn hennar fyrir veturinn var á sunnudaginn. En við fórum samt frekar nálægt fossunum og ég var sátt með það.
Klukkan 10 mínútur í 9 um kvöldið keyrðum við inní bílskúrinn og það var svo gott að koma hingað og ég gat sofið í rúminu mínu aftur ( svaf á vindsæng í stofunni í Toronto) og sofa aftur í lokuðu herbergi þvílíkt gott. En er búin að vera að vinna frekar mikið eftir að við komum heim því að Adam fór til Dallas í gærmorgun og kemur heim í nótt. En þegar ég kom heim þá beið mín skilaboð frá stelpunum á svæðinu og þær voru að skipuleggja helgarferð til New York City 31 des- 2 jan og ég talaði við Adam og Carolyn og ég verð í fríi þá þannig að ég verð í New York City á gamlárs er frekar sátt með það.
Á meðan ég var í Toronto þá keyptu stelpurnar miða fyrir mig á Usher tónleika 18.des en það er ekki alveg komið á hreint hvort að ég þurfi að vinna það kvöld. Vona svo innilega ekki því þá verð ég 66 dollurum fátækari og missi af Usher.
En það er Halloween um helgina og eru allir að fara í Halloween partý á laugardaginn og þar á með Adam og Carolyn sem þýðir að ég er ekki að fara í neitt partý (frekar fúl yfir því en ég lifi það af). Frekar leiðinlegt að alla stelpurnar eru búnar að finna búninga til að fara í en ég ætla ekki einu sinni að kaupa neinn búning. Hugsa samt að ég fari með strákunum á sunnudaginn að sníkja nammi ( trick or treat).
En í dag sá ég dádýr í fyrsta skipti( held ég) allavega fyrsta skiptið hér, en þau eru útum allt og þar á meðal í skólginum bakvið húsið mitt. En það eru skilti útum allt á vegunum að passa sig á þeim þau geta allt í einu hoppað útá veginn. Það sem ég sá í dag var einmitt að skjótast yfir götuna sem ég var að beygja inná. En þá er ég búin að sjá dádýr, íkorna, chipmonks og froska :D

Jæja ætla að koma mér uppúr sófanum og á hlaupabrettið, er búin að setja mér markmið að fara á það á hverjum degi. Fór í gærkvöldi eftir langan vinnudag og hljóp í 20 mín fór svo í sturtu og skreið svo uppí hreint rúm og það var ótrúlega gott og ætla að gera það aftur núna.
Ásrún
ps. það er allt of heitt hjá mér, í gær var 26 stiga hiti. 23 gráður í dag og verður svipað á morgun en á föstudag á hitinn að detta niður í 14 gráður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)